Back to All Events
Lóa Hlín er löngu landsþekkt fyrir teiknimyndir sínar auk þess að vera meðlimur hljómsveitarinnar FM Belfast. Hún mun vinna að bókagerð með hverjum þeim sem taka vill þátt. Lóa hefur áhuga á að vinna með íbúum Norðurþings, ungum sem öldnum, heyra sögur, slúður og annað sem ratað getur í bækur sem þátttakendur búa til undir hennar handleiðslu.